Jćja!!




Jæja, elskurnar!! hjálpiði mér nú!!:-)
Innilega til hamingju..
Við vorum sem sagt í skírn hjá Hönnu Valdísi (dóttur Guðrúnar og Hólmars). Yndisleg lítil stelpa sem fékk yndislegt nafn. Júnía var alveg í skýjunum með litlu frænkuna sína og helgina okkar saman. Hefði verið yndislegt að hafa hana Fanney með líka en þær koma saman um næstu helgi - Yndislegu stelpuskotturnar mínar.
Felix minn er búinn að vera mikið veikur alveg síðan á þriðjudaginn, þannig að við Júnía nýttum góða veðrið og fórum saman í sund og út í garð að leika, fórum á leikinn á föstudagskvöldið (Dalvík/Reynir - Huginn) og skemmtum okkur KONUNGLEGA. Það verður án efa aftur farið - Bara gaman. Eftir leikinn stoppuðum við svo við réttina í Árskógi og fórum í leiki. Vorum saman ég og Júnía, Kata og Manuel og Aron, Óðinn og Róbert Heiðmarssynir. Fórum í dimmalimm, stórfiskaleik og eina krónu, æðislega gaman.
Fórum svo í afmæli hjá Anítu Lind í dýragarðinum í gær og hittum alveg fullt af fólki.
Þannig að þetta er bara búið að vera ÆÐISLEG helgi - þar sem við skemmtum okkur ótrúlega vel og kúrðum svo hjá Felix fyrir framan sjónvarpið á kvöldin.
Hef voða lítið annað að segja. Vona bara að allir hafi það voða gott og hafi átt jafn æðislega helgi og ég og mínir :-)
-Írish
p.s. Hey, nafna - hef ákveðið að bjóða hópnum í Laser-Tag í byrjun júlí, kannski líka sjóstöng. Þegar ég er búin að vinna heilan mánuð og hef aksjúlí efni á að bjóða ykkur í þetta allt saman :-) Langar alveg rosalega í bjórkynningu í Kalda líka - en við sjáum til hvað þetta allt kemur til með að kosta. ;-)
ooooohh.. HELL YEAH!!:-)
Íslandið er áfram í Eurovision! get ekki beðið eftir Laugardagskvöldinu!!:-) Það verður bara snilld! Loksins, loksins fáum við að fylgjast með Íslandi allt til enda!
Innilegar hamingjuóskir Frikki og Regína :-* þið stóðuð ykkur með stæl!:-)
-Í kvöld, eins og flest önnur þó, var maður bara sérstaklega stoltur af því að vera Íslendingur!
kv. frá Dalvíkinni - Írish - semeraðmissasigúrgleði!!!:-)
OOOOOGGG...
En þær eru svona:
Íslenska 503 - 7
Íslenska 643 - 9
Sálarfræði 103 - 9
Sálarfræði 203 - 7
Náttúrufræði 123 - 9
Félagsfræði 303 - 7
Saga 303 - 8
Íþróttir 113 - 8
Dans - 10
Mentorverkefnið - 10
Sem gefur mér 3x7, 2x8, 3x9, 2x10 og 30 einingar fyrir þessa önn :-) Sem þýðir að ég á eftir 17 einingar í stúdentinn! Alveg að verða búin :-)
Búið að vera æðislegt að vera í smá fríi áður en ég byrja á hótelinu, er búin að fara svolítið í dýragarðinn að hjálpa Snorra frænda þegar það koma hópar og svoleiðis, dunda mér þess á milli heima hjá mér eða úti :-) Byrja á hótelinu á sunnudaginn kemur og er farin að hlakka mikið til! Vildi annars bara láta ykkur vita hvernig mér gekk á önninni.
Skrifa meira seinna - segi ekkert hvenær :* - stend hvort eð er yfirleitt ekki við það!
kv. Íris
Jebbsí..
Bryndís og Georg kíktu á okkur Felix á miðvikudagskvöldið og horfðumeð okkur á Chelsea slá Liverpool út úr meistaradeildinni. Þó svo að það hafi verið leiðinlegt þá létum við það ekki slá okkur út af laginu enda alltaf gaman þegar við hittumst. Takk fyrir skemmtunina þið tvö :-)
Ég fékk óvænta afmælisgjöf frá elskunni minni - óvissuferð um næstu helgi :-) það eina sem ég veit er það að við erum að fara suður og ég þarf að vera svolítið fínt klædd :-) Bara gaman, bjóst engan veginn við þessu þar sem hann er búinn að gefa mér ferð til Þýskalands til að hitta vinkonur mínar - þessi elska Ég ætlaði að fara í maí en ég er búin fresta henni fram í desember - í svona eins konar útskriftarferð þar sem ég vonast til að útskrifast um jólin næstu :-) - get ekki beðið!
Annars voða lítið annað að frétta. Nú eru prófin að fara á fullt! Fór í 1. prófið í morgun - Íslensku 503 sem hefði alveg mátt ganga betur :-/ en svona er þetta, maður vonar bara það besta! Saga 303 á morgun og ég SKAL ná!:-)
Farið vel með ykkur!!
*knús* á alla - Íris
Nýtt blogg..
Það var mikið stuð á miðvikudagskvöldið. Við Felix fórum eftir vinnu og skóla til Bryndísar og Georgs. Við vorum búin að ákveða að hittast, borða pylsur, sötra bjór og fara í Wii - tölvuna þeirra. OG þvílík SNIIILD!!
Þegar kl. var orðin 4 vorum við Bryndís orðnar verulega þreyttar eftir að hafa spilað mikið, dansað mikið og hlegið ÓTRÚLEGA mikið. Við ákváðum að fara í drykkjuleik (bara við 2) kl. hálf 10 um kvöldið og þeir sem þekkja mig, og vita hversu mikill hænuhaus ég er, fatta af hverju ég hljóp inn á klósettið og ældi eftir 4 umferðir.
gosi = 1 sopi
drottning = 2 sopar
kóngur = 3 sopar
ás = 4 sopar
Höfum það samt á hreinu að þetta áttu að vera stórir sopar, maður átti að þamba þá og þetta átti að ganga hratt fyrir sig. En allavega.. eftir 3 umferðir var aftur komið að mér. 10 spilin mín fóru ekki betur en það að ég fékk 2 drottningar, 2 kónga, 2 gosa og ás - hversu ótrúlega óheppinn er hægt að vera???
Í morgun vöknuðum við svo með FEEEIITAAAA strengi, eftir Wii-tölvuna. áttum bara í þvílíku basli með að klæða okkur - þvílíkt stuð bara!
Á afmæli í næstu helgi.. var að spá í að bjóða fólkinu mínu í laser-tag! Ég held að það gæti orðið svolítið stuð
En já, allavega - var orðin leið á að sjá alltaf sömu færsluna, svo ég ákvað að blogga smá!
Heyri í ykkur! - Íris OUT!
P.S. Hey Bryndís - passaðu þig á þunga klakanum - hann gæti meitt þig!
bwahahahahahahaha!!!
JÁHÁ!!
- Til hamingju með daginn ástin mín -

En ætla að smella inn nokkrum myndum sem við vorum að setja inn í tölvuna af myndavélinni sem er búin að vera batteríslaus í dálítinn tíma :)

Sætu skvísurnar :)

Fílingurinn í fullum gangi - eða er hún að reyna að ná þeim af? ;)

Stelpurnar í sveitinni með Eyrúnu Margréti - heimatilbúnar grímur!:)

- Með húfurnar frá ömmu Laugu. - Eru þær ekki sætar :* -

Jú þær eru það :*
hef 'etta ekkert lengra í bili..
- Íris
oooo..
En já, lítið að frétta héðan - er að vísu komin í langt og almennilegt páskafrí! sem er alltaf gott og gaman. Vildi nú alveg óska þess að geta nýtt veðrið á svona dögum - en það verður að bíða betri tíma. Vill frekar sitja heima með stíflað nef í 1 dag í viðbót heldur en að fara út núna í dag , í sund eða eitthvað álíka og sitja heima í 3 daga eftir það.
Stelpurnar voru hjá okkur um helgina, alveg yndislegt.. Við stelpuskotturnar bökuðum karamellubrownies handa húsbóndanum, sem líkaði það nokkuð vel
Fórum svo í mat til mömmu og pabba og borðuðum næstum á okkur gat. Þegar við vorum búin í matnum þá ákvaðum við að kíkja inn á Þelamörk í sund - þvílíkt ÆÐI! oooh, það var svo gaman að fylgjast með þeim systrum í rennibrautinni og liggja svo bara í sólinni og hafa það gott.
Júnía var fyndin þegar við fórum frá mömmu.
Felix: Eigum við að kíkja aftur í heimsókn til Kötu og Hauks á miðvikudaginn?
Júnía: JÁÁÁÁÁ..!!!
Svo þegar þau voru að labba út úr húsinu heyrist í henni:
KKKKAAAATTTTAAA!!! - ÉG EEELSKA ÞIGG!!
Þær systur eru náttúrulega BARA sætar! - það er svo gaman að eiga svona gullmola frá þeim, þegar þær eru ekki hjá okkur alltaf
En já, hef nú ekki mikið að segja ykkur annað
Heyri í ykkur bráðlega aftur
kv. Írish
Ótrúlegt!!
Ég ákvað að blogga smá handa ykkur! Hef nú samt ekkert mikið í fréttum..
Það er eiginlega allt svona same old same old ![]()
Er bara alveg á fullu í skólanum, en samt ekki of mikiði á fullu. Er að fara í óvissuferð á eftir með Mentor - verkefnis hópnum. Hann Borys minn og hún Berinika systir hans eiga vonandi eftir að fíla það.
Annars erum við Felix bara að brillera í skólanum. Felix ekki búinn að fá neina einkunn undir 9
Ég er búin að vera að fá svipaðar einkunnir og þetta á mínum prófum og verkefnum þannig að ég er bara sátt ![]()
Ussss.. haldiði að hann Felix minn hafi ekki komið mér svona svakalega á óvart á konudaginn. Hann bauð mér út að borða á Greifann, voðalega kósý og notalegt, svo fórum við bara og leigðum okkur spólu. Hann var búinn að vera eitthvað að fikta í símanum sínum um kvöldið og ef ég var forvitin og spurði hann hvað hann væri að gera þá sagði hann alltaf bara "það kemur í ljós".
Svo þegar ég kom heim og tók upp símann minn - sem var stilltur á silent þá var ég búin að fá sms. Í því stóð:
"í tilefni af konudeginum og afmælisins þíns 1. maí, þá ætla ég að bjóða þér út til Þýskalands í maí"
Neinei, þá er ferðin sko bara fyrir mig!!
Bara ég að hitta vinkonur mínar þarna úti í einhvern tíma![]()
á ég rómantískan kærasta eða hvað??![]()
Já, ákvað að deila þessu með ykkur úr því ég drattaðist til að setjast fyrir framan tölvuna og skrifa eitthvað - ég skal REYNA að bæta mig í blogginu, en ég LOFA ENGU ![]()
![]()
![]()
JAMM, "veriði góð við allt og alla, því þá gengur allt svo miklu betur" - afi á stöð 2, hehe
heyrumst, Íris![]()
hmmm..
Ótrúlegt að fyrsti mánuður ársins sé búinn! Fólkið í skólanum minntist á það þannig að loksins væri LENGSTI mánuður ársins búinn. Mér fannst það frekar skrýtið vegna þess að þessi mánuður er bara búinn að FLJÚGA frá mér. Ekkert mikið merkilegt búið að gerast en samt sem áður eitthvað.
Frá því að ég skrifaði síðast er:
-Ég byrjuð í skólanum
-Ég búin að taka þá ákvörðun að reyna að klára skólann um næstu jól
-Ég þess vegna í 28 einingum þessa önnina (ég veit - klikkun)
-Ég búin að fá 9,5 í söguverkefni - SKEMMTILEGA ÓVENJULEGT!
-Felix minn búinnað standa sig OFBOÐSLEGA vel í stærðfræðinni
-Gullmolinn minn hún Júnía orðin 4 ára
-Bróðir minn orðinn 17 ára (orðin stærri)
-Mamma mín orðin 40 ára - og lítur ÓTRÚLEGA vel út!
-Ég hamingjusamari en ALLT :) - LÍFIÐ ER YNDISLEGT!
Já, það er svo sannarlega yndislegt! Það er gaman þegar allt gengur manni í hag og maður hefur ekki yfir neinu að kvarta ![]()
Ég á frábæran mann, frábæra fjölskyldu, frábæra vini og allt er bara voðalega frábært! ![]()

Jæja, nú eruði allavega búin að fá smá meiri fréttir af mér og mínum
